Sunday, October 5, 2014

Bollukaka með sesamfræjum

Þá er komið að bolluköku með sesamfræjum. Í þessari uppskrift helmingaði ég uppskriftina því að bæði ég og Magnús þurftum að baka uppskriftina og við áttum ekki nógu mikið hveiti. Einnig gleymdum við að kaupa hveitilíð svo við slepptum því líka. Það gekk vel að baka brauðið nema þar sem að ég var bara með 16 bollur en ekki 30 eins og heil uppskrift átti að hafa, þá gekk erfiðlega að raða bollunum í flottan hring. Ekki það að það sé aðalatriðið en það hefði verið gaman að hafa þær í fullkomnum hring :)

En þá að ferlinu.


Við byrjum á því að blanda þurrefnunum okkur saman í skál. Þau eru hveiti, þurrger, salt og sykur. Þetta hrærði ég svo vel saman til að blanda öllum hráefnunum. Munið að þið eigið ekki að nota allt hveitið.


Næst hellum við saman við matarolíunni, mjólkinni, heita vatninu og egginu.


Þegar þú ert búin að hræra deigið vel saman ætti það að lýta einhvernveginn svona út.


Næst þarf að láta deigið hefast. Þá er því komið fyrir á volgum stað, eins og til dæmis í volgu vatnsbaði, og skálinni lokað með plastfilmu eða einhverskonar loki til að haldda hitanum inni. Látið degið hefast í um 10 mínútur.


Þegar að deigið hefur lokið við að hefast ætti það að hafa tæplega tvöfaldast.


Bætið restinni af hveitinu við degið og hnoðið það.


Rúllið deginu í lengju.


Nú er komið að því að skipta deiginu. Samkvæmt uppskriftinni ætti ég að fá um 15 bollur með helmingaðri uppskrift. Ég ákvað að hafa þær 16 þvi það er auðveldar að skipta þeim þannig. Ég byrjaði á því að helminga lengjuna, síðan helmingjaði ég þá tvo helminga alveg þangað til ég var komin með 16 stykki.


Mótið kúlu úr hverjum bút sem þið skáruð. Þá ættuð þið að vera með sextán kúlur.


Komiið kúlunum fyrir á bökunarplötu og raðið þeim upp í ,,hring". Passið að þær liggi ekki alveg þétt upp við hvort aðra þar sem þær þurfa smá pláss til að stækka og við viljum ekki enda með eina brauðklessu. Þegar að þið eruð búin að raða bollunum penslið þá yfir þær með eggi.



Takið næst sesamfræ og stráið yfir bollurnar. Stingið svo bökunarplötunni inn í ofn og bakið í um 15 mínútur við 200°.



Voilá! Ótrúlega góðar brauðbollur. Þessar verða sko gerðar aftur!

Njótið!
Rannveig

Eplakaka

Jæja þá er komið að eplakökunni. Ég hef aldrei verið hrifin af eplakökum, borða þær oftast ekki, svo ég var spennt að sjá hvernig þessi myndi heppnast. Það gekk vel að baka hana og það fór í rauninni ekkert illa nema ég átti ekki svona form sem maður getur klemmt saman og því þurfti ég að hvolda kökunni tvisar til að geta látið hana snúa rétta á disknum og við það brotnaði hún aðeins. En enginn skaði skeður því hún var eins á bragðið :)

En nú að ferlinu.


Fyrst setti ég smjörlíki og sykur saman í skál og þeytti þar til blandan var orðin ljós og létt. Passið af hafa smjörlíkið við stofuhita svo það sé lint.



Næst hrærði ég saman eitt ekk í glas og hellti ofan í smjölíkisblönduna. Síðan hélt ég áfram að þeyta.


Þegar blandan lýtur nokkurn vegin svona út þá ertu búin að þeyta nóg. Þá er komið að því að bæta þurrefnunum saman við.


Ég sigtaði hveiti og lyftiduft saman í skál svo að lyftiduftið myndi blandast vel saman við hveitið.


Á meðan hrærivélin er í gangi hellið þá smávegis af hveitiblöndunni út í skálina. Það á ekki að hella öllu hveitinu út í strax heldur blanda því smátt og smátt saman á móti mjólkinni,


Hellið nú smáveigis af mjólkinni út í skálina. Hellið svona koll af kolli smáveigis af hveitinu og smávegis af mjólkinni. Það ætti að duga að gera sitt á hvað þrisvar sinnum.


Þegar öll hráefnin eru að hrærast saman í skálinni bætið þá vanilludropunum út í deigið.


Þegar þú hefur lokið við að hræra þá ætti deigið að lýta svona út.


Smyrjið bökunarformið ykkar og hellið deiginu í formið.


Flysjið nú eitt meðalstórt epli og skerið í þunna báta.


Raðið bátunum ofan á degið í það mynstur sem þið viljið. Ég raðaði þeim í hring.


Þá er komið að lokaskrefinu! Stráið kanilsykri, og nóg af honum yfir kökuna ykkar og stingið henni svo inn í ofn.


Bakið kökuna í 30-40 mínútur við 175° hita.




Nammi nammi namm, að sjá þetta meistarastykki! Ég fékk mér smakk af henni og þrátt fyrir að hún sé svona girnileg þá var ég ekki hrifin af henni. Það sannaðist því enn einu sinni að mér finnst eplakökur ekki góðar :(

Njótið!
Rannveig

Thursday, October 2, 2014

Löng hveitibrauð (Snittubrauð)

Jæja þá er komið að því að baka löng hveitibrauð, eða snittubrauð eins og þau kallast oft í daglegu tali.



Ég byrjaði á því að taka saman öll þurrefnin sem ég þurfti að nota í uppskriftina. Þau voru þurrger, salt, hveiti og sykur.


Ég blandaði þurrefnunum mínum saman í skál og hrærði þeim vel saman.


Næst hellti ég vogu vatni og matarolíu út í hveitiblönduna og hrærði saman.


Svona leit deigið út þegar ég var búin að hræra öllum innihaldsefnunum saman.


Næst lokaði ég skólinni minni og kom henni fyrir í volgu vatnsbaði þar sem ég lét deigið hefast í um 15 mínútur.


Eftir hefun hafði deigið tvöfaldast.


Næst bætti ég örlitlu hveiti við deigið því það var dálítið þunnt hjá mér og hnoðaði það saman í eina stóra kúlu.


Kúlunni skipti ég síðan í tvennt og mótaði í tvö löng brauð. Ég skar rifur í brauðin og þar sem ég átti ekki egg smurði ég það með mjólk í staðin.


Næst setti ég brauðin inn í ofn og lét þau bakast í 15 mínútur. 




Svona litu svo þessi meistarastykki út þegar að þau komu úr ofninum. Og þau voru sko ekki vond það get ég sagt þér!

Allt í allt gekk vel að baka brauðin. Það eina sem fór illa var að deigið var svolítið þunnt hjá mér eftir hefun og ég var voðalega dugleg að hella niður á mig hveiti.


Njótið!

Rannveig

Saturday, September 20, 2014

Pönnukökur

Jæja ég ákvað að byrja þessa bökunartíð á pönnukökum! Hver elskar ekki pönnukökur spyr ég bara? Ég hef allavega elskað þær frá því ég var lítil stelpa og eru þær eitt það besta sem ég fæ. Samt er þetta bara í annað skipti sem ég baka þær. Uppskriftin sem ég stuðst er við í þessari færslu heitir einfaldlega Pönnukökur og er að finna í bókinni Við matreiðum á blaðsíðu 221. Það gekk voðalega vel að baka eftir þessari uppskrift en klaufinn ég tókst samt að brenna mig þegar ég var að meðhöndla smjörið, svo ég myndi segja að það var það sem fór illa.



Ég byrja á því að mæla hveiti, salt sykur og lyftiduft í sigti. Síðan sigta ég blönduna í skál svo að hráefnin blandist vel saman.



Næst blanda ég saman við þurrefnin helmingnum af mjólkinni sem á að fara í uppskriftina, um 2 desíllítra.



Þegar að mjólkin er komin í skálina hræri ég vel saman svo að blandan verði að kekkjalausu deigi.




Næst tek ég eitt egg og hræri það saman og blanda við deigið. Þegar því er lokið bræði ég smjör á pönnukökupönnunni og helli því saman við deigið og blanda vel. Hér gætuð þið bætt við vanilludropunum en ég kaus að sleppa þeim þar sem mér finnst pönnukökur betri án þeirra. Þá er komið að því að steikja pönnukökurnar!


Ég helli einni ausu af deiginu á heita pönnuna sem má þó ekki vera of heit því þá brennur pönnukakan og það viljum við sko ekki! Dreifið vel úr deiginu með því að halla pönnunni til hliðar, fram og aftur.


Losið deigið frá meðfram hliðum pönnukökunnar og snúið kökunni svo við þegar að þið sjáið að loftbólur eru farnar að myndast á henni. Þetta þýðir að hún er farin að bakast og það má snúa henni við.


Hér getið þið séð myndband um hvernig þið eigið að steikja pönnuköku. Afsakið léleg hljóðgæði :)


Voilá! Pönnukakan er tilbúin! Haldið áfram að endurtaka leikinn þangað til þið eruð komin með 14-16 stykki af pönnukökum.



Njótið! (Mér finnst mínar bestar með sykri)


Rannveig