Að búa til þessar bollur var ekki erfitt og mér finnst alveg fáránlegt hvað heimatilbúnar fiskibollur eru miklu betri en þær sem maður kaupir tilbúnar út í búð.
Í þessar bollur notuðum við ýsu. Við byrjuðum á því að mauka fiskinn í matvinnsluvél. Það verður samt að passa að mauka hann ekki of mikið, þetta á ekki að verða fiskihakk. Það er líka hægt að tæta fiskinn með skeið ef þið viljið það frekar. Næst hrærði ég fiskinn með handþeytara og bætti við hann salti og pipar. Við ákváðum að sleppa lauknum þar sem við erum ekki miklar laukmanneskjur ég og Maggi. Næst bættum við kartöflumjölinu og hveitinu út í og hrærðum því sman við. Næst tókum við eitt egg sem við vorum búin að slá í sundur og bættum því saman við fiskinn. Það síðasta sem við þurftum að setja við bollurnar var mjólk. Við hrærðum henni smám saman við blönduna. Næst brúnuðum við bollurnar á pönnu með smjöri (við svindluðum smá því að allt er betra ef það er steikt upp úr smjöri :) ). Síðan komum við bollunum fyrir á eldföstu móti og kláruðum að elda þær inni í ofni.
Ástæðan fyrir því að við kláruðum bollurnar inni í ofni en suðum þær ekki var einfaldlega sú að okkur leist ekkert á þessa sósu og við vildum fá stökka húð utan um bollurnar. Í staðn fyrir sósuna ákváðum við að útbúa heimatilbúna Karrýsósu. Uppskriftina fengum við af bloggsíðunni eldhussogur.com og má sjá hana hér: http://eldhussogur.com/2012/10/09/fiskibollur-med-karrisosu/ (við notuðum að sjálfsögðu bara sósuuppskrftina en ekki fiskibolluuppskriftina)
Sem meðlæti með bollunum og sósunni suðum við hrísgrjón því það er ekkert betra en hrísgrjón og góð karrýsósa. Nammi namm :)
Það gekk rosalega vel að elda þessa uppskrift þó að ég hélt á tímabili að fiskibollublandan var alltof þunn eftir að búið var að bæta við mjólkinni og stóst uppskriftin að bollunum allar mínar væntingar.
Njótið!
Rannveig
No comments:
Post a Comment